Kristján Atli
\ forsíða / blogg / kop / flickr / last.fm / twitter / facebook \

Hip-Hopera

Ég hafði eitthvað heyrt eða lesið útundan mér af því að R. Kelly væri að gera svokallaða hip-hoperu, eða blöndu af hip-hop tónlist og sápuóperu, en það var ekki mikið meira en það. Í gær benti Haukur bróðir mér svo á að vídjóin af þessu eru á YouTube.

Ég veit ekki hvort R. Kelly er að meina þetta bókstaflega (sennilega) eða í gríni, en þetta er engu að síður eitt það fyndnasta sem ég hef séð. Ég er búinn að horfa á þetta allt og mæli með þessu umfram nánast alla grínþætti sem ég hef séð um ævina. Nú skil ég hvað South Park voru að meina með að skrifa R. Kelly inn í Tom Cruise/Scientology-þáttinn sinn víðfræga:

Trapped in the closet - Part 1
Trapped in the closet - Part 2
Trapped in the closet - Part 3
Trapped in the closet - Part 4
Trapped in the closet - Part 5
Trapped in the closet - Part 6
Trapped in the closet - Part 7
Trapped in the closet - Part 8
Trapped in the closet - Part 9
Trapped in the closet - Part 10
Trapped in the closet - Part 11
Trapped in the closet - Part 12

Hápunkturinn er hiklaust stóra uppgötvunin í kafla 9. Ég var sjokkeraður, sleginn og agndofa yfir framvindu mála! Horfið á þetta allt, það er þess virði … þetta eru tólf “kaflar,” eða ca. 3ja mínútna lög þar sem R. Kelly segir söguna af rugluðum degi í lífi hetjunnar Sylvester. Ég veit ekki hvort það eru fleiri kaflar á leiðinni, þar sem það er ekki kominn endir á söguna í lok 12. kafla, en ég veit að ég fylgist spenntur með!


5 Ummæli

Ég pissaði í mig úr hlátri fyrst þegar ég sá þetta! Kafli 9. stendur án efa uppúr. Það er ítarleg útlistun á þessu “listaverki” á Wikipedia :)

Hrönn | 8. janúar 2007 @ 15:28

Þú meinar þessa Wikipedia síðu.

Þetta er einfaldlega ótrúlegt verk. Eins og stendur á Wiki: “Kelly maintains that he is a genius for pioneering what he calls a hip-hopera.”

Hann er sannfærður um eigið ágæti, það má hann eiga. En þetta er samt einhver almesti tónlistarskítur sem ég hef heyrt.

Kristján Atli | 8. janúar 2007 @ 21:30

[…] Einnig: Hip-hopperan hans R Kelly er eitthvert misskildasta stórvirki í sögu tónlistarinnar. […]

Kristján Atli » R Kelly er málið. Þið hin eruð ekki málið. | 17. júní 2007 @ 16:59

[…] 8.01.07: “Hip Hopera” […]

Kristján Atli » Kaflar 13-22 af 'Trapped in the Closet' væntanlegir! | 10. ágúst 2007 @ 17:55

[…] 8. janúar 2007: Ég bloggaði fyrstu tólf kafla Trapped in the Closet. […]

Kristján Atli Ragnarsson » Trapped in the Closet!!! | 6. desember 2007 @ 01:18

Skrifaðu ummæli

Væntanlegt iNerds