Kristján Atli
\ forsíða / blogg / kop / flickr / last.fm / twitter / facebook \

Kaflar 13-22 af ‘Trapped in the Closet’ væntanlegir!

Þetta eru góðar fréttir fyrir alla heimsbyggðina segi ég, allan heiminn! Meistari R Kelly mun á næstu vikum og mánuðum afhjúpa næstu tíu kafla af mestu snilld allra tíma, og til að tryggja það að við mannsbörnin sem fylgjum guðspjalli hans getum vart sofið af spenningi hefur hann gefið okkur smá ’sneak preview’. Þetta er meðal þess sem búast má við:

“Oh, shit!”

Ég hef áður fjallað um snilli R Kelly:

Ég fer að útnefna hann Guðföður þessarar bloggsíðu. Enda ekki úr vegi að jafn virðulegur einstaklingur samfélagsins og Errið skuli hljóta jafn veigamikið hlutverk. Hver er hæfari til starfans, spyr ég? Enginn!


8 Ummæli

Jáááááá!!!!!!!

Björgvin | 10. ágúst 2007 @ 18:13

Ömmm… Ókey, ég hló að þessu R. Kelly gríni þínu í fyrstu. En nú ertu byrjaður að hræða mig… Eru FJÓRAR greinar ekki full mikið?

Eyvindur Karlsson | 10. ágúst 2007 @ 20:24

Af hverju þarftu að brjóta á mannréttindum mínum með þessum hætti?

Sigurjón | 11. ágúst 2007 @ 00:44

Strákar, strákar. R Kelly er málið. Þið eruð ekki málið. Ég hitti heilar fjórar manneskjur í bænum í gær sem hrósuðu mér fyrir áframhaldandi umfjöllun um Errið og “Trapped in the Closet”.

Kristján Atli | 11. ágúst 2007 @ 10:51

Kristján… Sá sem er fastur í skápnum hlýtur að vera þú, miðað við þetta… Ég mæli með því að þú kíkir í gönguna á eftir… Kannski losnar um eitthvað…

Eyvindur Karlsson | 11. ágúst 2007 @ 12:30

Ég er löngu kominn út úr skápnum. Þú bara sagðir nei, þannig að kvenfólkið verður að duga sem næstbesti kostur.

Kristján Atli | 11. ágúst 2007 @ 13:45

Úúú… Það má segja að mér hafi verið eilítið nauðgað í andlitið… Kombakk sem ekki er hægt að svara. Glæsingur.

Eyvindur Karlsson | 11. ágúst 2007 @ 15:04

Jep. Ég get þetta stundum. :)

Kristján Atli | 11. ágúst 2007 @ 15:10

Skrifaðu ummæli

Missti af 15 mínútna frægð Hinsegin dagur