Núðlur
Við höfum öll farið út í búð og keypt litla núðlupakka á 30kr. stykkið, þessa sem má setja í sjóðandi heitt vatn og borða, ekki satt? Þetta er einfaldasti matur í heimi að elda, hvort sem þú borðar pakkanúðlur eða gefur þér tíma til að elda alvöru máltíð. Það er ekki hægt að klúðra núðlum. Það er ekkert flókið við núðlur, er það nokkuð?
Tja …
Þetta er eitthvert ótrúlegasta myndband tengt matreiðslu sem ég hef séð. Eftir að hafa horft á þetta finnst mér talsvert flottara að borða núðlur en mér fannst áður. Að vita að einhver austurlenskur stærðfræðisnillingur með fimustu hveitihendur í heimi hafi handleikið matinn minn … það er bara bragðbætandi!
Einnig á YouTube: Hvernig á að opna bjórflösku með einu blaði af A4-pappír.
Mæli líka með þessari grein sem kemur með áhugaverðan punkt. Peak-end reglan er eitthvað sem við fylgjum öll án þess endilega að pæla í því. Ég las þessa grein fyrst yfir kvöldmatnum fyrir einhverjum kvöldum síðan og ég sver það, ég var með síðasta, safaríkasta bitann á gaflinum þegar ég byrjaði að lesa þetta. Þetta er svo satt.
1 Ummæli