Trapped in the Closet!!!
Ég lofaði bloggi í kvöld. Ég sagði líka í síðustu viku að það myndi þurfa eitthvað sérstaklega spes til að draga mig út úr bloggfelum.
Mig grunaði samt ekki að það yrði eitthvað svona HRIKALEGA, SÉRSTAKLEGA SPES. Má ég kynna mikilvægustu, bestu og mestustu færslu sem ég hef bloggað síðan 8. janúar s.l.: Trapped in the Closet, part 13-22!
8. janúar 2007: Ég bloggaði fyrstu tólf kafla Trapped in the Closet.
10. ágúst 2007: Ég tilkynnti ykkur að næstu tíu kaflar af Trapped in the Closet væru væntanlegir.
Og í dag stend ég við stóru orðin …
- Trapped in the Closet, 13. og 14. kafli.
- Trapped in the Closet, 15. kafli.
- Trapped in the Closet, 16. kafli.
- Trapped in the Closet, 17. kafli.
- Trapped in the Closet, 18. kafli.
- Trapped in the Closet, 19. kafli.
- Trapped in the Closet, 20. kafli.
- Trapped in the Closet, 21. kafli.
- Trapped in the Closet, 22. kafli - THE FINALE!
Ég átta mig á að þessi færsla mun gegna veigamiklu hlutverki í áframhaldandi háskori íslensku þjóðarinnar á hamingjustuðli Sameinuðu Þjóðanna (eða var það Rauði Krossinn?). Því fylgir mikil ábyrgð að vera talsmaður Errsins á íslenskri grundu, en ég vona að mér hafi farist verkið vel úr hendi á árinu sem er senn að líða.
Til þeirra er málið varðar, þá verð ég heima hjá mér öll kvöld í janúar, ef þið skylduð vilja koma Fálkaorðunni í réttar hendur. Plís, ekki troða henni í póstkassann minn ef ég er í sturtu rétt á meðan þið dinglið. Komið aftur seinna.
4 Ummæli