Kristján Atli Ragnarsson
\ forsíða / blogg / kop / flickr / last.fm / twitter / facebook \

Sigur

Í svona veðri er bara eitt hægt að gera, og það er að sigra Valsmenn.

Það er svo sem alltaf gaman að sigra Valsmenn (og það er alltaf hægt), en það verður sérstaklega skemmtilegt í svona góðu veðri.

Og nei, ég er ekki að jinxa þetta hjá mínum mönnum. Ég fór á fyrstu sex leiki tímabilsins og sá þar fimm sigra og eitt jafntefli. Missti svo af leiknum gegn Breiðablik í síðustu viku og þá tapaði liðið fyrsta leik sínum. Ég verð því að gera skyldu mína og mæta á Og Vodavone-völlinn á Hlíðarenda í kvöld svo liðið geti unnið aftur. Ég vona allavega að menn hristi af sér slenið - við skuldum Valsmönnum ráðningu eftir að leyfa þeim að stela titlinum okkar í fyrra!

Uppfært (23:07): Sigur var það, nema hvað? Og gat vart verið sætara. Þessi leikur var jafn mest allan tímann og jafntefli hefði verið sanngjörn niðurstaða, en þó fengu bæði lið færi á að klára dæmið. Maður hafði allan tímann á tilfinningunni að þetta gæti dottið öðru hvorum megin og það gerðist í uppbótartíma. Við sáum ekki vítaspyrnudóminn nógu vel í stúkunni en Kiddi Jakobs dómari virtist handviss og hikaði ekki við rauða spjaldið. Mér skilst á þeim sem sáu endursýningar að vítið hafi verið hárrétt og því verður það ekki tekið af FH að sigurinn er réttmætur.

Staðan í deildinni er þá svona:

1. FH - 19 stig

8. Valur - 10 stig

Besta lið Íslands. Þannig er þetta bara. :)


2 Ummæli

Díses, ég var einmitt að segja við Samma um daginn að nú yrðum við að byrja að styðja okkar hverfislið (er samt hrifnari af handboltanum) og fara á leiki … svo horfðum við á hvort annað og spurðum bæði í einu: “Hvað er eiginlega hverfisliðið okkar???” Ég hef bara ekki hugmynd um hvaða liði við eigum að halda með miðað við búsetu, Fram, Víkingur eða guðmávitahvað! Ég verð að finna það út áður en handboltinn byrjar! ;)

Jóhanna | 25. júní 2008 @ 21:46

Ég er farinn að hlakka meira til næsta leiks við keflvíkinga Það verður sætt:P

stefán páll | 30. júní 2008 @ 22:52

Skrifaðu ummæli

Carlin, þá og nú Þreyttur