Helgarfree
Í dag varð ég fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að hiksta í miðjum ropa. Það vita allir hversu hættulegt slíkt getur verið, en þótt loftbólan sem ákvað að synda niður strjúpann á mér í kjölfarið hafi ekki náð að drepa mig verður hún ekki sökuð um að hafa ekki reynt.
“But I probably really should have been at work
But if my free time’s gone would you promise me this that you willPlease bury me with it
Please bury me with it”- Modest Mouse
Það var alveg kominn tími á eins og eitt helgarfrí. Best að hugsa ekki um neitt af viti næstu tvo dagana og þrjár næturnar. Engin vinna, engin tölva, engin rökhugsun. Ætli ég geti látið handtaka mig fyrir að dansa magadans - í tilheyrandi klæðum - á umferðareyju niðrí bæ?
2 Ummæli