Kristján Atli Ragnarsson
\ forsíða / blogg / kop / flickr / last.fm / twitter / facebook \

Who dat?

Fred Durst? WTF!?

Annars er ég búinn að fikta aðeins meira í útlitinu á síðunni. Laga litina aðeins og sumt af því sem var einum of æpandi fyrir minn smekk. Ég á þó enn eftir að fiffa þetta aðeins til; er ekki enn 100% sannfærður um að þessi bleiki litur sé sá eini rétti fyrir vefsíðu (smámunur getur skipt sköpum) og svo er ég orðinn þreyttur á þessum dröppuðu leturlitum sem ég hef lengi haft á lager og gríp í þegar ég mig vantar bráðabirgðalausnir.

Svarti bakgrunnurinn hefur yfirgefið textann, þannig að fólk ætti að geta lesið án þess að fá flogakast núna.

Eruð þið búin að horfa á myndbandið hér að ofan? Gott. Segið mér, hvort er Durst í alvörunni skakkur/út úr heiminum eða bara að reyna misheppnaða tilraun til að vera fyndinn? Ég veit það ekki, en ég starði á hann allt myndbandið. Það tók minnst tíu mínútur áður en ég sá að þetta gæti mögulega verið hann. Þvílík breyting.


4 Ummæli

Getur ekki verið að hann sé að reyna að vera fyndinn.
Hlítur að vera freðinn, hvað var málið með Einstein tattúið, þetta var eins og afinn í Simpsons.

Skilaðu kveðju til betri helmingsins.

Gunnar Páll | 4. júlí 2008 @ 07:33

Skila því. Skilaði líka kveðju til barnanna þinna, sem héngu utan í mér á alla mögulega vegu í gærkvöldi. :)

Kristján Atli | 4. júlí 2008 @ 09:26

Er hann ekki bara heimskur?

Eyvindur Karlsson | 4. júlí 2008 @ 21:23

Sennilega bara allt þrennt.

Kristján Atli | 5. júlí 2008 @ 12:02

Skrifaðu ummæli

Þreyttur Helgarfree