Kristján Atli
\ forsíða / blogg / kop / flickr / last.fm / twitter / facebook \

Six degrees of separation

Það er gaman að fara inná Facebook og slá inn eitthvað íslenskt nafn af handahófi. Skoða svo leitarniðurstöðurnar. Í ljós kemur að meirihluti Íslendinga inná Facebook þekkir mig ekki persónulega, en þekkir að minnsta kosti eina persónu sem ég þekki líka. Þannig að á Íslandi eru það ekki sex persónur á milli mín og allra, heldur aðeins ein. Nefnið Íslending, hvaða Íslending sem er, og ég get eflaust tengt mig við þann Íslending með aðeins einum millilið.

Annars fór vinalistinn minn á Facebook yfir 100-múrinn í morgun. Sem er ágætt, þar sem ég bæti aðeins við fólki sem ég þekki persónulega eða hef þekkt á mínu æviskeiði. Ég þekki greinilega fullt af fólki. :)


5 Ummæli

Það hefur orðið þvílík sprengja á Íslandi þegar kemur að Facebook. Þetta var vel þekkt síða í USA þegar ég kom út enda hugsað fyrst sem “háskólasamfélag á netinu”. Var lengi vel með sirka 100 vini en á síðustu 6 mánuðum hefur það farið úr sirka 130 í 320, ALLT Íslendingar.

Sigurjón | 30. júlí 2008 @ 13:20

Getur það verið að Facebook sé hlutfallslega vinsælla á Íslandi en í mörgum öðrum löndum? Mér gengur allavega betur að fletta upp fólki hér heima en fólki sem ég þekki erlendis. Ekki það að “fólk sem Kristján þekkir erlendis” sé stórt úrtak, en það er eina viðmiðunin sem ég hef. :)

Kristján Atli | 30. júlí 2008 @ 14:32

Bara til að testa þetta.. :)

Heldur þú að þú getir tengt þig við mig??

Ari Kristmundsson.. (nobody from Njarðvík) ;)

Ari Kristmundsson | 30. júlí 2008 @ 18:03

Prófaði að leita að nafninu þínu og fékk upp tvo Ara Kristmundssyni við leit. Báðir eruð þið með læsta prófíla, þ.e. að ég get ekki skoðað neitt hjá ykkur nema vera vinur ykkar, og því get ég ekki tékkað á því hvort við eigum sameiginlega vini. :)

Kristján Atli | 30. júlí 2008 @ 18:28

Ok.
Sennilega full snemt að tékka á því þá.. hehe

Var að stofna Facbook thingíið.. :)

Ari Kristmundsson | 30. júlí 2008 @ 18:32

Skrifaðu ummæli

Starfsviðtal Hitabylgja