Ágúst 2008
Jæja, eftir 43 mínútur lýkur ágætis júlímánuði, bæði persónulega og blogglega séð. Ég virðist hafa fundið bloggþróttinn aftur eftir dapra mánuði þar á undan.
Ég ætla að fagna því með því að taka mér frí í ágúst. Það eru að verða komin tvö ár síðan ég setti þessa síðu í loftið (eða hætti við að hætta, eins og ég orðaði það þá) á nýjan leik og ég hef verið frekar virkur á síðunni síðan þá. Nú hef ég hins vegar mikilvægari hnöppum að hneppa en bloggi og því efast ég um að ég skrifi nokkuð í ágúst (fyrir utan mögulega eina færslu, sjáum til).
Mæti svo vonandi ferskur strax í september, reiðubúinn að deila fleiri gullkornum sem enginn les með engum sérstökum.
Sem sagt, búið í bili. Ég hef um aðra hluti að hugsa í ágúst …

Verið stillt.
5 Ummæli