Kristján Atli
\ forsíða / blogg / kop / flickr / last.fm / twitter / facebook \

Pat and Mat

Fullorðið fólk er yndislegt.

Ég hef lengi velt því fyrir mér hvernig í fjandanum ég gæti fundið eina af mínum uppáhalds þáttaröðum frá barnæsku. Vandamálið var bara að ég vissi að þetta voru tékkneskir þættir en þeir voru sýndir á Ríkis undir nafninu Klaufabárðarnir. Frábært nafn, en hjálpar mér ekki neitt.

Í dag leystist svo ráðgátan þegar samstarfsaðili minn - sem er enn eldri en ég, nota bene - ákvað að deila með okkur aðdáendasíðu fyrir þessa þætti. Hann hafði rekist á síðuna fyrir tilviljun, fengið nostalgíukipp og viljað deila þessu með okkur hinum.

Má ég kynna ykkur fyrir … Pat & Mat:

Pat and Mat maður. Ef þið framkvæmið YouTube-leit að þeim kumpánum finnið þið örugglega flesta þættina þeirra. Þetta er gegndarlaus snilld og að mínu mati fjársjóðsfundur netsins þetta sumarið!

Tékkneskt barnaefni. Heimsklassi.


6 Ummæli

Þú gjörsamlega gerðir sumarið hjá mér. Robbie Keane kominn til Liverpool og Klaufabárðarnir endurfæddir á skjánum hjá mér, snilld.

Elías Már | 31. júlí 2008 @ 20:13

Djöfull er ég sáttur með þig! Hef líka verið að velta þessu fyrir mér í langan tíma. Þetta er tímalaus snilld!

Sævar Helgi | 31. júlí 2008 @ 22:39

Elli, þú veist að ég er sérfræðingur í að eigna mér heiðurinn á annarra manna verkum, en jafnvel ég get ekki þóst hafa borgað þessar 20.3m punda fyrir Keane. :)

Hitt skal ég alveg eiga, að ég er snillingur fyrir að deila þessum heimsklassa með ykkur strákar. Verði ykkur að góðu, og passið að horfa ekki yfir ykkur á þetta. Þið hljótið að hafa eitthvað fleira að gera um verslunarmannahelgina, ekki satt?

Kristján Atli | 1. ágúst 2008 @ 09:23

Þegar hann andar á eplið í byrjun, geltir hann þá?

Sigurjón | 1. ágúst 2008 @ 15:16

Að finna þetta : http://www.patandmat.net/mp3/pat-and-mat_classic-melody-01.mp3 … yljaði mér heldur betur. Takk Krisján!

Sigurjón | 1. ágúst 2008 @ 15:33

Ég veit. Þetta er nýji hringitónninn minn. :)

Kristján Atli | 1. ágúst 2008 @ 15:40

Skrifaðu ummæli

Nauðgun Ágúst 2008