Kristján Atli
\ forsíða / blogg / kop / flickr / last.fm / twitter / facebook \

Inní mér syngur …

Þetta er stórasta lag í heimi:

Enn ein sönnun þess hversu einstök sveit Sigur Rós er. Textinn var klárlega saminn með mig og dóttur mína í huga. Ég á erfitt með að hlusta á þetta lag án þess að klökkna, en þetta er eina lagið í heiminum sem kemst nálægt því að lýsa því hvernig nýbökuðum föður líður (án þess þó að ég hafi hugmynd um hvort það sé meiningin á bak við lagið eða e-ð annað).

Minn besti vinur, á hverju sem dynur, ég kyngi tári og anda hári, af illum látum í faðmi grátum, þegar við hittumst, þegar við kyssumst, varirnar brenndu, höldumst í hendur,  ég sé þig vakinn, ég sé þig nakin, inní mér sýngur vítleysíngur …

Jeminn.


5 Ummæli

Fyndið að ég var búinn að skrifa færslu fyrir helgi akkúrat um þetta lag. Ákvað að drífa mig í að publish-a hana núna þegar ég sá þetta hjá þér.

Þetta er lagið sem mun minna mig á sumarið 2008. Ég tengi það eflaust við allt aðra hluti en þú, en það breytir því ekki að minningarnar eru góðar.

Einar Örn | 27. ágúst 2008 @ 23:40

Það skiptir eiginlega ekki öllu máli hvaða minningar eða tengingar maður hefur við þetta lag, þetta er lag sumarsins 2008 fyrir ansi marga Íslendinga þori ég að veðja.

Kristján Atli | 28. ágúst 2008 @ 16:01

Það er rétt… Þetta er lag sumarsins fyrir mig, vegna þess að þetta er klárlega vondasta lag sem ég hef nokkurn tíma heyrt. Gott að þú upplifir textann á jákvæðan hátt. Ég upplifi hann bara sem afskaplega mikla hrákasmíð, og ég hef aldrei engst jafn mikið um yfir útvarpinu og þegar ég heyrði þetta lag fyrst… Sannaði fyrir mér í eitt skipti fyrir öll hvað Sigur Rós er arfavond hljómsveit.

Eyvindur Karlsson | 29. ágúst 2008 @ 12:01

Þú ert arfavondur. Sættu þig við það. Þú ert í svo miklum minnihluta með þessa skoðun að það er ekki fyndið.

Í alvöru. Hættu að stæra þig af þessari rökhugsun þinni og beittu henni. :)

Kristján Atli | 29. ágúst 2008 @ 15:13

Beita rökhugsun á tónlist?

Reyndar þekki ég fáa sem fíla Sigur Rós, án djóks. Þú held ég eini maðurinn sem ég umgengst eitthvað sem hefur gaman af þessu bandi. Allir aðrir fengu ógeð eftir Ágætis byrjun (sem mér fannst lala, en ekkert stórvirki - allt eftir það hefur verið frekar slappt).

Og hvers konar rökhugsun er það að fyrst margir hafa gaman af Sigur Rós þá hljóti hún að vera góð? Ekki gleyma því að Spice Girls var einu sinni vinsælasta hljómsveit í heiminum.

Eyvindur Karlsson | 29. ágúst 2008 @ 19:03

Skrifaðu ummæli

Kristjánsdóttir The Wire